Með amfetamín og landa
Lögreglan á Suðurnesjum kom um helgina að þremur ungum mönnum, sem voru að drekka landa. Einn þeirra var einnig með amfetamín í vörslum sínum.
Lögreglumenn voru við hefðbundið eftirlit í umdæminu, þegar þeir heyrðu mikinn hávaða berast frá húsnæði einu. Þeir bönkuðu upp á og var boðið að ganga inn. Húsráðandi, sem setið hafði að sumbli ásamt hinum tveimur í bílskúr, vísaði lögreglu þangað. Lögreglumennirnir komu auga á þrjá brúsa og aðspurðir sögðu mennirnir eð þeir hefðu að geyma landa. Þá komu lögreglumenn auga á plastpoka á borði, sem innihélt hvítt duft. Spurðir nánar út í pokann kvaðst einn mannanna eiga hann og tjáði lögreglunni að þetta væri amfetamín.
Mennirnir eru allir í kringum tvítugt.