Með amfetamín í sokknum
Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning aðfararnótt sunnudagsins um einstakling sem væri grunaður um að vera með amfetamín í fórum sínum. Lögreglumenn fundu fljótlega einstakling sem passaði við þá lýsingu sem gefin hafði verið. Hann reyndist vera með hvítt efni, sem talið er vera amfetamín, í poka í öðrum sokk sínum. Maðurinn reyndist vera of ölvaður til að hann gæti svarað spurningum lögreglu og var því fluttur á lögreglustöð þar sem hann var látinn sofa úr sér.
Þá hafði lögreglan afskipti af öðrum karlmanni á skemmtistað í bænum. Við leit á honum fannst hvítt efni pakkað inn í sellófan í buxnavasa hans. Maðurinn var færður á lögreglustöð og yfirheyrður þar.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800 5005 þar sem hægt er að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál undir nafnleynd.