Með á annað hundrað oxycontintöflur
Karlmaður var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöld við komuna til landsins þar sem í farangri hans fundust á annað hundrað oxycontintöflur. Tollgæslan fann töflurnar við hefðbundið eftirlit. Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði töflurnar og málið er í rannsókn.
Annar karlmaður var stöðvaður við komuna til landsins um helgina. Hann reyndist vera með meint fíkniefni í buxnaskálm sinni.