Bygg
Bygg

Fréttir

Með 500 ectacy-töflur og kókaín
Þriðjudagur 26. júní 2012 kl. 15:43

Með 500 ectacy-töflur og kókaín



Íslendingur um tvítugt var í fyrrinótt stöðvaður við komuna til landsins frá Danmörku við hefðbundið eftirlit tollgæslunnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Við leit á honum fundust fíkniefnapakkningar, auk þess sem hann reyndist hafa fleiri fíkniefnapakkningar innvortis. Alls reyndist hann vera með rúmlega 500 ectacy-töflur og rúmlega sextíu grömm af kókaíni. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum sem veitir ekki frekari upplýsingar um það að svo stöddu.

Annað fíknefnamál kom einnig upp er íslenskt par á sjötugsaldri var stöðvað við komuna til landsins við hefðbundið eftirlit tollgæslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar 25. maí síðastliðinn. Maðurinn og konan, sem voru að koma frá Danmörku, reyndust vera með mikið magn af kókaíni meðferðis, en það var vandlega falið í ferðatösku. Málið hefur verið til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Hafa tveir Íslendingar til viðbótar, kona á þrítugsaldri og karlmaður á fertugsaldri, verið handtekin eftir að rannsókn málsins hófst og setið í gæsluvarðhaldi síðan. Að auki er þriðja Íslendingsinsins, sem talinn er eiga aðild að málinu leitað erlendis og hefur verið gefin út alþjóðleg handtökuskipun á hann. Lagt var hald á nokkurt magn fíkniefna við húsleitir vegna rannsóknar málsins. Lögregla veitir ekki frekari upplýsingar um það að svo stöddu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn