Með 3 kg. af amfetamíni
Lögreglan á Suðurnesjum hefur nú til rannsóknar mál manns á fertugsaldri vegna tilraunar hans til stórfellds smygls á amfetamíni til landsins.
Maðurinn, sem er spænskur ríkisborgari kom með flugi hingað til lands frá París í lok síðasta mánaðar. Tollgæsla stöðvaði hann í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna gruns um að hann hefði eitthvað óhreint í pokahorninu.
Við leit í ferðatösku hans fundust falin tæp þrjú kíló af amfetamíni.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins en maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi frá því hann var handtekinn og verið yfirheyrður.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem umræddur maður hefur komið við sögu lögreglu því hann hefur hlotið refsidóm í öðru landi fyrir samskonar verknað.