Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Með 1.3 kíló af kókaíni innvortis
Föstudagur 14. september 2012 kl. 16:55

Með 1.3 kíló af kókaíni innvortis

Talið mesta magn fíkniefna sem einstaklingur hefur flutt innvortis.

Fertugur karlmaður situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að tollgæsla stöðvaði för hans í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við hefðbundið eftirlit 27. ágúst síðastliðinn. Hann var að koma til landsins frá Kaupmannahöfn. Grunur lék á að maðurinn, sem er þýskur ríkisborgari, væri með fíkniefni innvortis. Lögreglan á Suðurnesjum handtók hann færði hann því í sneiðmyndatöku, sem sýndi að um mikið magn virtist vera að ræða. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald daginn eftir að hann var handtekinn og á næstu dögum skilaði hann af sér 107 pakkningum sem allar innihéldu kókaín.

Við aðra sneiðmyndatöku kom í ljós að ein pakkning til viðbótar sat föst efst í meltingarvegi hans. Hann var því færður á sjúkrahús þar sem gerð var á honum aðgerð til að fjarlægja pakkninguna. Maðurinn reyndist hafa flutt innvortis 1.3 kíló af kókaíni milli landa. Er þetta talið mesta magn fíkniefna sem einstaklingur hefur flutt innvortis í einni ferð.  Efni pakkninganna var þykkt og vel til þeirra vandað.  Tómar vógu þær um 200 grömm, þannig að samtals hafði maðurinn gleypt 1.5. kíló. Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins og telst hún vera á lokastigi. Ekki hafa fleiri verið handteknir vegna þess. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024