Matstaðir færðir til í flugstöðinni

Á föstudaginn verður svo veitingastað IGS lokað fyrir farþega í norðausturhorninu á 2. hæð og hann opnaður samdægurs á nýja brottfararsvæðinu. Síðan verður fyrrum veitingasvæði þiljað af og byrjað að rífa og fjarlægja innréttingar til undirbúnings breytingum í þessum hluta flugstöðvarinnar.
Flutningur veitingastaðar og mötuneytis eru til marks um að framkvæmdir við breytingar og stækkun flugstöðvarinnar eru að komast á fullan skrið að nýju nú þegar háannatíminn í ferðaþjónustu er að baki. Nú eru menn sem sagt að bretta upp ermar og leggja til atlögu við breytingar á austursvæði flugstöðvarinnar, verkhluta sem gert er ráð fyrir að ljúka áður en sumartíð ferðaþjónustunnar hefst 2007.