Matsáætlun vegna stækkunar Keflavíkurflugvallar
Isavia hefur til kynningar á vefnum tillögu að matsáætlun vegna stækkunar Keflavíkurflugvallar. Isavia er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum er unnið af VSÓ Ráðgjöf.
Í drögum að tillögu að matsáætlun er m.a. gerð grein fyrir eftirfarandi:
Framkvæmdum til ársins 2025, helstu áhrifaþáttum framkvæmda, hvernig staðið verði að mati á umhverfisáhrifum; matsspurningar, gögn sem verður stuðst við og nýjar rannsóknir sem verður aflað. Fyrirkomulagi kynninga og samráðs og framsetningu gagna í frummatsskýrslu.
Drögin eru aðgengileg á vefsíðu Isavia, www.isavia.is, á sérstöku svæði sem nefnist „Stækkun flugvallar“. Senda skal skriflegar athugasemdir eða ábendingar um drögin á netfangið [email protected] eða VSÓ Ráðgjöf, Borgartún 20, 105 Reykjavík.
Frestur til að senda inn ábendingar er til 31. ágúst n.k.