Matarúthlutun Fjölskylduhjálpar 23. febrúar
Fyrsta matarúthlutun Fjölskylduhjálpar Íslands á Suðurnesjum þetta árið verður þann 23. febrúar nk. Úthlutunin átti að fara fram þann 2. febrúar sl. en var frestað þar sem unnið er að endurskipulagningu þess hjálparstarfs sem samtökin veita.
Fatamarkaður er alla fimmtudaga hjá Fjölskylduhjálp Íslands í Grófinni í Keflavík.