Marta er nýr framkvæmdastjóri Kadeco
-Fráfarandi framkvæmdastjóri hefur verið frá stofnun Kadeco en segir nú starfi sínu lausu
Kjartan Þór Eiríksson, sem hefur verið framkvæmdastjóri Kadeco frá stofnun þess árið 2006, hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu, en hann lætur af störfum strax. Við hlutverki hans tekur Marta Jónsdóttir, sem til þessa hefur starfað sem lögfræðingur félagsins.
Kadeco var stofnað af stjórnvöldum til þess að koma eignum sem ríkið tók yfir á varnarsvæðinu á Miðnesheiði í hagfellda notkun með sérstakri áherslu á hagsmuni nærsamfélagsins. Á Ásbrú búa nú um 2.500 manns auk þess sem þar starfa á annað hundrað fyrirtæki og stofnanir með yfir 800 starfsmenn. Fjárfesting á svæðinu frá árinu 2006 er metin á yfir eitt hundrað milljarða króna. Þá hefur sala eigna skilað ríkissjóði um tíu milljörðum króna.
Í fréttatilkynningu Kadeco segist Kjartan þakklátur fyrir þau tíu ár sem hann hefur farið fyrir Kadeco og ánægður með þann árangur sem þau hafi náð. „Við höfum nú selt nær allar þær eignir sem félagið fékk til umsýslu með góðum hagnaði fyrir ríkið. Á sama tíma hefur byggst upp lífleg íbúabyggð og fjölbreytt atvinnustarfsemi á Ásbrú sem hefur styrkt samfélagið hér á Suðurnesjum mikið. Það liggur því fyrir að félagið stendur nú á tímamótum og fyrirsjáanlegt er að breytingar muni verða á hlutverki þess og starfsemi. Því tel ég að núna sé rétti tíminn fyrir mig til að láta af störfum hjá félaginu.“
Georg Brynjarsson, stjórnarformaður Kadeco, segir að stjórn félagsins muni á næstu vikum endurskoða starfsemi og stefnu félagsins í samstarfi við hluteigandi aðila á svæðinu. „Þrátt fyrir minnkandi fasteignaumsvif er mikill fjöldi verkefna í gangi hjá félaginu og markmið endurskipulagningarinnar er að varðveita uppsafnaða þekkingu innan Kadeco og tryggja viðfangsefnum félagsins varanlegan farveg.“