Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Markaðsstofa Suðurnesja stofnuð
Mánudagur 12. janúar 2009 kl. 14:51

Markaðsstofa Suðurnesja stofnuð



Stofnuð hefur verið Markaðsstofa Suðurnesja. Tilgangur hennar er að innleiða faglegt og samræmt markaðsstarf meðal ferðaþjónustuaðila á Suðurnesjum, byggja upp öflugan gagnabanka um hvaðeina er lýtur að þjónustu við ferðamenn og markaðssetja Suðurnes og Reykjanesið fyrir ferðamönnum. Markaðsstofan mun einnig hafa með höndum samskipti við opinbera aðila eins og Ferðamálastofu um markaðssetningu svæðisins erlendis og innanlands.

Fyrsta stjórn Markaðsstofu Suðurnesja hefur verið skipuð þeim Reyni Sveinssyni, sem verður formaður, Óskari Sævarssyni, varaformaður, og Kristján Pálsson. Markaðsstofan er stofnuð af Ferðamálasamtökum Suðurnesja með tilstyrk Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Framkvæmdastjóri stofunnar er Kristján Pálsson.

Í tilkynningu frá Markaðsstofunni segir að vonast sé eftir að góð samstaða og samstarf verði við ferðaþjónustuna á Suðurnesjum, Ferðamálastofu og ferðamálastjóra um rekstur Markaðsstofunnar. Mikilvægt sér að ferðaþjónustan á Suðurnesjum nýti sér það sem Markaðsstofan hafi upp á að bjóða.

Þá segir ennfremur að fyrsta verkefni Markaðsstofunnar verði að endurgera heimasíðuna www.reykjanes.is sem verið hefur heimasíða Ferðamálasamtaka Suðurnesja en afhendist nú Markaðsstofunni. Bæklingagerð og sýningarhald ársins verði unnið í samráði við hagsmunaaðila.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024