Margir útlendingar í hópi atvinnulausra
- segir Guðbrandur Einarsson, formaður VS
„Það sem vekur athygli í þessu er hversu stór hluti atvinnulausra eru einstaklingar með erlent ríkisfang eða rúm 40% af hópnum. Svo virðist sem árstíðabundin atvinnustarfsemi eins og ferðaþjónusta sé að hafa þessi áhrif. Aðeins hefur dregið úr þeirri miklu þenslu sem hér hefur verið og það getur haft aukið atvinnuleysi í för með sér, alla vega tímabundið,“ segir Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja um nýjar atvinnuleysistölur á Suðurnesjum.
Guðbrandur segir að það geti einnig haft áhrif að á þessu svæði sé mikið byggt á vaktavinnu og ekki alltaf auðvelt fyrir ungt fólk með börn að ráða sig í slíka vinnu. Atvinnuleysi innan VS sé hins vegar lægra en þessar tölur gefa til kynna. Þarna er verið að sýna meðaltal en atvinnuleysi er misjafnt eftir starfsgreinum að sögn Guðbrands.