Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Margir starfsmenn í námi í leikskólakennararfræðum
Hér eru nemarnir saman komnir ásamt nokkrum skólastjórnendum, fulltrúum á fræðslusviði og sviðsstjóra fræðslusviðs. Mynd/Reykjanesbær.
Fimmtudagur 1. október 2015 kl. 08:55

Margir starfsmenn í námi í leikskólakennararfræðum

Reykjanesbær brást vel við tilmælum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands sem hvöttu sveitarfélög til að styðja við átak fjölgun leikskólakennara. Í því skyni býður bærinn upp á sveigjanleika til að starfsmenn í leikskólum bæjarins geti stundað leikskólakennaranámið með vinnu.

Á dögunum kallaði fræðslusvið Reykjanesbæjar saman þá starfsmenn í leikskólum Reykjanesbæjar sem stundað hafa nám í leikskólakennarafræðum og einnig  þá sem voru að byrja sl. haust. Að sögn Ingibjargar Bryndísar Hilmarsdóttur leikskólafulltrúa hafa fáir útskrifast héðan af svæðinu á undanförnum árum og því sé það einkar ánægjulegt hversu námshópurinn er stór, segir á heimasíðu bæjarins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024