Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Margir með þungan bensínfót - klippur á lofti
Föstudagur 19. júní 2015 kl. 09:45

Margir með þungan bensínfót - klippur á lofti

Tólf ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 143 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Ýmist áttu brotin sér stað á Reykjanesbraut eða Grindavíkurvegi.

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar. Loks hafði lögregla afskipti af ökumanni sem ók enn á nagladekkjunum og þarf hann að greiða sekt.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024