Margir heimsóttu kirkjugarðana yfir hátíðarnar
Margir heimsóttu leiði látinna ættingja nú um hátíðarnar enda veður með eindæmum hagstætt. Mátti sjá kertaljós á mörgum leiða í kirkjugörðunum. Jólaljósaskreytingar í kirkjugörðunum lýstu upp umhverfið en mjög margir setja jólaljósaskreytingar á leiðin og krossana í görðunum.
Nú er jólahátíð langt komin og á miðvikudag lýkur henni á Þrettándanum. Í Reykjanesbæ verður árleg þrettándagleði og þá kveðjum við jólahátíðina. Meðfylgjandi myndir voru teknar um jól og áramót í kirkjugjörðum í Keflavík og Njarðvík og einnig af einu fallegasta jólatrénu í bænum, við Baldursgarð í Keflavík.
---
---
---
---
---