Bygg
Bygg

Fréttir

„Margir hafa fengið sig fullsadda“
Miðvikudagur 27. janúar 2010 kl. 08:51

„Margir hafa fengið sig fullsadda“


Áhugahópur um betri Grindavík sem hefur hug á því að bjóða fram undir nafni Grindavíkurlistans í sveitastjórnarkosningunum í vor, hefur boðað til fundar í Sjómannastofunni Vör, annað kvöld kl. 20:00.

Í tilkynningu frá Grindavíkurlistanum segir að til standi að stofna nýtt framboð og mynda framboðslista skipaðan fólki sem beri hag bæjarfélagsins fyrir brjósti.
„Fólki sem kýs að bendla sig ekki við fjórflokkana og vill einbeita sér að lýðræðislegum vinnubrögðum. Fjölmargir bæjarbúar deila þeirri skoðun að undanfarið kjörtímabil hafi verið mikill umrótarími og oftar en ekki hafi orðspor bæjarins beðið mikla álitshnekki vegna ósamstöðu bæjarstjórnar og tíðra stjórnaslita. Margir hafa fengið sig fullsadda og vilja nýjar áherslur þar sem hagur bæjarbúa er hafður í fyrirrúmi," segir í tilkynningunni.
---

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Horft yfir Grindavík - Ljósmynd: Oddgeir Karlsson.