Bygg
Bygg

Fréttir

Miðvikudagur 24. nóvember 1999 kl. 21:24

MARGAR BÍLVELTUR OG ÖLVUNARAKSTUR

Mörg umferðaróhöpp hafa orðið að undaförnu og má fyrst og fremst rekja til vanbúinna bifreiða og slæms færis. Flestir ökumennirnir hafa sloppið með skrekkinn og lent á vegastikum og umferðaskiltum en ekki á öðrum bifreiðum. Sumir hafa þó ekki sloppið eins vel og farið nokkrar veltur eftir að hafa misst stjórn á bílum sínum. S.l. sunnudag fékk lögreglan tilkynningu um þrjár bílveltur vítt og breytt um Reykjanesið. Ekki var mögulegt að sinna öllum útköllunum vegna anna. Ökumaður, sem grunaður er um ölvun, velti bifreið sinni á Reykjanesbraut vestan við Grindavíkurveg. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Nokkrum mínútum síðar varð önnur bílvelta á svipuðum slóðum, en ökumaðurinn sagðist ætla að koma sér og bifreiðinni sjálfur aftur upp á veg, því lögreglan var upptekin annars staðar. Þriðja veltan varð við Sandgerðisveg nálægt afleggjaranum við Rockville. Ökumaðurinn fór sjálfur á sjúkrahúsið. Á mánudaginn valt jeppabifreið við Kúagerði og skemmdist töluvert. Ökumaðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en fékk að fara heim að skoðun lokinni. Talið er að misræmi í hjólbörðum hafi verið einn orsakaþáttur slyssins, en þeir voru stórir og grófir að framan en minni og sléttari að aftan.
Bílakjarninn
Bílakjarninn