Bygg
Bygg

Fréttir

Maraþonstelpur í Njarðvík
Laugardagur 28. maí 2005 kl. 10:43

Maraþonstelpur í Njarðvík

Stelpurnar í 10. flokk í körfubolta í Njarðvík sitja ekki auðum höndum í kvöld því þær eru byrjaðar á körfuboltamaraþoni sem hófst klukkan 20:00 í gærkveldi og endaði klukkan 08:00 í morgun. Stelpurnar eru á leiðinni til Spánar í keppnisferðalag og hafa þær safnað sér upp í ferðalagið með ýmsum uppátækjum sem þessu.

Stelpurnar vilja þakka öllum þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem hétu á þær í maraþoninu.

Myndin: Stelpurnar tóku stutta pásu til að stilla sér upp fyrir ljósmyndarann

Bílakjarninn
Bílakjarninn