Mannlaus makrílbátur strandaði í stórgrýti
Makrílbáturinn Siggi Gísla EA 255 strandaði í stórgrýttri fjöru við Keflavíkurhöfn nú á þriðja tímanum. Hafnsögubáturinn Auðunn hefur náð bátnum af strandstað.
Sigga Gísla EA rak mannlausan frá bryggju í Keflavík og upp í stórgrýtta fjöruna.
Nokkrir makrílbátar eru á veiðum á þessum slóðum en engan grunaði að báturinn væri mannlaus og á leið upp í fjöru.
Lögregla kom fljótlega á staðinn. Línu var skotið frá nálægum makrílbát og í land og taug dregin yfir í Sigga Gísla EA.
Auðunn kom nokkru síðar á staðinn og var taug kastað þaðan yfir í hinn strandaða bát. Báturinn var dreginn af strandstað en þá slitnaði dráttartaugin og Sigga Gísla EA rak aftur upp í grýtta fjöruna.
Fljótlega gekk að koma taug að nýju í hafnsögubátinn og náði hann Sigga Gísla EA aftur í tog.
Ljóst er að báturinn er nokkuð skemmdur og leki kom að honum.
Nánari fréttir af strandinu síðar í dag og þá verður einnig birt myndband sem Víkurfréttir tóku af björgunaraðgerðum.
VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson