Manni rænt í Garði: Slapp undan ræningjum í Biskupstungum
Maður á sjötugsaldri var numinn brott af heimili sínu í Garðinum af fjórum mönnum á laugardagskvöld. Mennirnir stungu honum í farangursgeymslu bifreiðar, létu hann dúsa þar í sjö klukkustundir og gengu í skrokk á honum. Lögregla fer með málið sem mannrán. NFS greindi frá málinu.
Kristinn Óskarsson sat ásamt börnum sínum og horfði á sjónvarpið um kvöldmatarleitið á laugardag þegar dyrabjallan hringdi. Fjórir menn biðu við húsið, spurðu Kristinn að nafni og létu hnefana dynja á honum.
Kristinn, sem var skólaus, segist hafa sloppið við illan leik frá mönnunum, í frosti um hánótt. Hann kom að bænum Múla í Biskupstungum, um 5 kílómetra frá Geysi, um klukkan 2 um nóttina, eða sjö klukkustundum eftir að ofbeldismennirnir námu hann á brott.
Lögreglan í Keflavík, fer með rannsókn málsins og fer með það sem mannrán.
Mynd: Kort sem sýnir hvar Kristinn slapp undan mannræningjum við bæinn Múla í Biskupstungum. Innfelld mynd frá Garðinum.