Mannbjörg við Grindavík - Video
- báturinn að brotna í fjörunni
	
	
	Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 12:23 neyðarkall frá bátnum Gottlieb 2622 sem var vélarvana við Hópsnes við Grindavík. Rak bátinn hratt að landi. Fjórir skipverjar voru um borð. Þegar í stað var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út sem og björgunarsveitir á Suðurnesjum og björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Þá var samhæfingarstöðin einnig virkjuð, segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
	
	Skömmu eftir að útkallið barst var báturinn kominn upp í kletta og lagðist þar á hliðina. Nærstaddir bátar á svæðinu komust ekki að til aðstoðar. Strekkingsvindur var á svæðinu, SA 10-12 m og aðstæður á staðnum erfiðar.
	
	Skipverjar, sem voru allir í björgunargöllum náðu að koma taug í land og kl. 12:51 barst staðfesting um að þeir væru allir komnir upp í fjöru heilir á húfi.
	
	Um hálftíma eftir að útkallið barst lenti þyrla Landhelgisgæslunnar í fjörukambinum og flutti hún skipverja til Grindavíkurhafnar. Þaðan voru skipverjarnir fluttir í björgunarstöðina í Grindavík þar sem þeir fengu hressingu og lögregla ræddi við þá.
	
	Samkvæmt upplýsingum voru mennirnir allir heilir á húsi, en var brugðið.
	
	Þyrla Landhelgisgæslunnar fór aftur að strandstað þar sem aðstæður til björgunar á bátnum voru skoðaðar. Aðstæður eru þannig að nær vonlaust er að ná bátnum aftur á flot en hann er þegar talinn vera farinn að brotna í fjörugrjótinu.
	
	Myndir á vettvangi: Hilmar Bragi Bárðarson
	
	
	 
	Þyrla Landhelgisgæslunnar við Grindavíkurhöfn í dag.
	
	
	 


 
	
				


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				