Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mannbjörg þegar lóðsbátur sökk við björgunarstörf (myndir og video)
Fimmtudagur 4. júní 2009 kl. 18:13

Mannbjörg þegar lóðsbátur sökk við björgunarstörf (myndir og video)

Auðunn, lóðsbátur Reykjaneshafnar, sökk nú fyrir skömmu er hann var að aðstoða við að koma Sóleyju Sigurjóns GK 200 af strandstað, en hún strandaði í innsiglingunni í Sandgerði í morgun.
 
Tveir menn voru í lóðsinum, annar uppi á dekki en hinn í stýrishúsi. Sá í stýrishúsinu fór niður með lóðsinum en komst upp á yfirborðið um 1-2 mínútum eftir að báturinn sökk. Bátar frá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum voru á svæðinu og náðu mönnunum úr sjónum.

Farið var með þá að bryggju þar sem björgunarsveitafólk hlúði að þeim þar til sjúkrabílar komu á staðinn. Farið var með mennina á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
 
Auðunn var að ýta á bakborðshlið Sóleyjar þegar hún losnaði og vildi þá ekki betur til en að landfestar hennar, sem voru tengdar í lóðsinn, drógu bátinn á hliðina.

Eftir að búið var að ná mönnunum úr sjónum var hafist handa við að reyna bjarga lóðsinum en það tókst ekki og sökk hann nokkrum mínútum eftir atvikið.
 
Sóley Sigurjóns er laus og komin að bryggju.

Hilmar Bragi Bárðarson, myndatökumaður Víkurfrétta náði myndum af atvikinu. Meðfylgjandi eru nokkrar ljósmyndir frá atvikinu. Myndband af slysinu er hér.



Sóley Sigurjóns GK laus af standstað. Taug er yfir í Auðunn og þegar þarna er komið við sögu er komið mikið átak á lóðsbátinn.



Togarinn fór hratt út af strandstaðnum og átakið var mikið á lóðsinn sem kippist til og fer á hliðina.



Auðun kominn á hvolf á augabragði. Annar skipverjanna var þegar bjargað í björgunarbát sem kom þarna að. Hinn er ennþá í stýrishúsinu þegar þessi mynd er tekin.



Lóðsbáturinn kominn á hvolf. Björgunaraðgerðir hófust strax og mönnunum tveim sem voru um borð var bjargað.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Sjá myndband hér!

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024