Bygg
Bygg

Fréttir

Mánaðarblaðið Faxi er nú að finna á vefnum timarit.is
Fimmtudagur 12. apríl 2012 kl. 11:57

Mánaðarblaðið Faxi er nú að finna á vefnum timarit.is



Blaðstjórn Faxa ákvað á árinu 2010 að stefna að því að færa Faxa yfir á starfrænt form og birta það síðan á síðunni timarit.is. Hófst þessi aðgerð á því að sótt var um styrk til Menningarráðs Suðurnesja og gekk það eftir því í desember 2010 fékk blaðið úthlutað kr. 400.000. og var sú upphæð notuð til að hrinda verkefninu úr vör. Gerður var samningur við Þjóðarbókhlöðuna um að hefja verkið en umfangs þess er nokkuð mikið því blaðið hefur komið út óslitið frá árinu 1940 og er nú að upplagi um 18.000. síður. Nú þegar hefur verið lokið við að vinna fyrstu 34 árgangana og eru þeir aðgengilegir á vefslóðinni http://timarit.is

Til að ljúka við að fjármagna þetta verkefni sem líklegast mun kosta eina til tvær milljónir hefur Faxi hleypt af stokkunum söfnun styrktarframlaga að upphæð kr. 5.000. hvert. Félagarnir í Málfundafélaginu Faxa munu á næstu mánuðum sjá um þessa söfnun og þarf ekki að fjölyrða um að styrktarframlög eru vel þegin.

Faxi hefur um langt skeið verið uppspretta ýmis konar fróðleiks um liðinn tíma á Suðurnesjum og hafa fjölmargir nýtt sér þær heimildir sem þar er að finna. Með því góða aðgengi sem skapast hefur með vistun hinnar stafrænu útgáfu á timarit.is þá verður leitun heimilda í Faxa mun auðveldari en áður.

Bílakjarninn
Bílakjarninn