Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mamma sótti 15 ára gutta sem réðst á lögreglumenn
Laugardagur 3. september 2005 kl. 11:22

Mamma sótti 15 ára gutta sem réðst á lögreglumenn

Lögreglan í Keflavík hafði afskipti af 34 ungmennum í nótt fyrir að hafa áfengi um hönd án þess að hafa aldur til eða fyrir útivistarbrot. Á vef lögreglunnar kom fram að þau hafi öll verið færð í Öryggis- og upplýsingamiðstöð Ljósanætur þar sem haft var samband við foreldra þeirra. Var talsvert tekið af bjór og áfengi sem ungmennin voru með.
Á þriðja tímanum í nótt handtóku lögreglumenn 15 ára ölvaðan og æstan pilt á Hafnargötu í Keflavík en hann veittist að lögreglumönnum sem þar voru að störfum. Pilurinn var færður á lögreglustöð en hann var skömmu síðar sóttur af móður sinni.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024