Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Málverkasýning Álfheiðar í Saltfisksetrinu
Laugardagur 5. febrúar 2005 kl. 12:33

Málverkasýning Álfheiðar í Saltfisksetrinu

Álfheiður Ólafsdóttir opnaði á dögunum sýningu í Saltfisksetrinu í Grindavík. Sýninguna kallar hún Fjallið mitt .Allir eiga sitt fjall, Þríhyrningur í Fljótshlíð er henni hugleikinn því hún er alin upp við rætur hans. Fjallið sjálft er ekki mikið í málverki Álfheiðar , heldur hugsar hún til  fjallsins  og málar frá hjartanu.Í litum mynda hennar birtast minningar frá æskuárunum austan úr Fljótshlíð.
Sýningin stendur yfir í rúmar þrjár vikur til 23. febrúar. Listsýningarsalur Saltfisksetursins er opinn alla daga frá 11:00til 18:00.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024