Málverkasala til styrktar Afríkubúum sem misst hafa útlimi
Hópur myndlistarmanna á Suðurnesjum hefur tekið sig saman og ætlar að efna til sölu á málverkum til hjálpar Afríkubúum sem misst hafa útlimi vegna styrjalda, pyntinga eða sjúkdóma.
Málverkasalan er haldin í samstarfi við IceAid – íslensk þróunar- og mannúðarsamtök (www.iceaid.org) sem skipuleggur verkefni í austur Afríku sem felst í því að setja gervifætur á 100 manns, koma þeim þannig aftur á fætur og gera þeim kleift að taka þátt í atvinnulífinu á nýjan leik og lifa eðlilegu lífi.
Verkefnið er unnið í samráði við Icexpress teymið sem býr til hágæða gervifætur með nútíma tækni á mun styttri tíma en gengur og gerist. Þessu til viðbótar verður útvöldum einstaklingum á þessu svæði kennt að búa til gervifætur með tækni og búnaði Icexpress teymisins svo þeir geti hjálpað bræðrum og systrum í eigin samfélagi. Icexpress teymið samanstendur af íslenskum og suður afrískum stoðtækjafræðingum og tæknimönnum (www.icexpressprojects.com).
Með verkefninu er ætlunin að Íslendingar leggi sitt af mörkum til að þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun nái fram að ganga.
Málverkasalan fer fram í kaffihúsi aðalbækistöðva Kaffitárs að Stapabraut 7 í Reykjanesbæ.
Alls hafa 15 myndlistamenn gefið myndir, má þar nefna Sossu, Ástu Árna, Írisi Jóns. ofl. Sérstök opnun verður haldin föstudaginn 30. nóvember, klukkan 18:00 í Kaffitár í Reykjanesbæ. Fólki er boðið að koma og kaupa málverk á viðráðanlegu verði og styrkja mjög gott málefni í leiðinni. Hagnaður af sölunni rennur óskiptur til verkefnisins. Kaffitár mun bjóða upp á kaffiveitingar.
Mynd: Sossa er ein þeirra sem gefið hafa málverk fyrir góðan málstað.