Málþing um sögutengda ferðaþjónustu í Reykjanesbæ hófst í dag
Málþing í Reykjanesbæ um Nýtt landnám, sögutengda ferðaþjónustu hófst í dag með kynningu í húsnæði Íslendings á Seylubraut 1(gamli Rammi). Málþinginu er ætlað að varpa ljósi á þá miklu grósku sem einkennir sögutengda ferðaþjónustu á Íslandi. Einkum verður fjallað um ferðaþjónustu er byggir á Íslendingasögunum og tímabilinu fram til 1300. Er Sögueyjan loks að rumska og hvað ber framtíðin í skauti sér? Málþingið er haldið í samvinnu Reykjanesbæjar og Evrópuverkefnisins Destination Viking Sagalands. Aðgangur er ókeypis.
Klukkan 15:00 byrjaði málþing í Duushúsunum við smátbátahöfnina þar sem Stefán Bjarkason verður með ávarp.
Dagskráin sem eftir er af deginum er svo hljómandi:
15.10
Evrópuverkefnið Destination Viking Sagalands:
Rögnvaldur Guðmundsson, verkefnisstjóri
Víkingaskipið Íslendingur:
Gunnar Marel Eggertsson og Sigrún Ásta Jónsdóttir, safnstjóri.
Eiríksstaðir og Leifsverkefnið í Dölum:
Helga Ágústsdóttir og Þrúður Kristjánsdóttir.
Þjórsárdalur:
Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi og Bjarni Harðarson, blaða- og sagnamaður.
16.15
Kaffiveitingar í boði Reykjanesbæjar
16.45
Gásir við Eyjafjörð:
Kristín Sóley Björnsdóttir, Ferðamálasetri Íslands
Landnámssetur í Borgarnesi:
Kjartan Ragnarsson, leikstjóri.
Sögumiðstöð og sagnamennska á Grundarfirði:
Ingi Hans Jónsson, sagnamaður.
Upphaf byggðar - Landnámsskálinn í Aðalstræti:
Hjörleifur Stefánsson, arkitekt.
Eðlismassi, höfuðstóll og segulstál - nokkrar pælingar um Ísland og sögutengda ferðaþjónustu:
Andri Snær Magnason, rithöfundur
18.00
Málþingi slitið
Fundarstjóri:
Kristján Pálsson, formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja.
Vf-mynd/Bjarni-frá kynningunni í dag