Bygg
Bygg

Fréttir

Málþing um byggingarmál og umhverfisverðlaun á fimmtudag
Miðvikudagur 16. september 2009 kl. 08:49

Málþing um byggingarmál og umhverfisverðlaun á fimmtudag


Haldið verður málþing á vegum Reykjanesbæjar um byggingarmál fimmtudaginn 17. september n.k. kl. 17:00 í Bíósal Duushúsa. Fjallað verður um breytingar á afgreiðslufyrirkomulagi á skrifstofu Reykjanesbæjar, nýtt fyrirkomulag í útgáfu framkvæmdaleyfa og kynning verður  á byggingarstjóramöppunni svokölluðu sem taka á upp nú í haust. Allar þessar breytingar taka gildi 1. október n.k.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

??Til stendur að taka í notkun nýtt þjónustuver  Reykjanesbæjar þar sem öll þjónusta viðskiptavina Reykjanesbæjar verður á einum stað.

Umhverfis- og skipulagssvið mun taka upp nýtt fyrirkomulag vegna framkvæmdaleyfa á vegum jarðvinnuverktaka í bæjarfélaginu. Þannig er hægt að tryggja réttar merkingar við framkvæmdir, samráð og ábyrgð á viðgerðum sem gerðar eru á götum bæjarins.
Þann 1. október verður tekin í notkun Byggingarstjóramappa sem byggð er að fyrirmynd byggingarstjóra Reykjavíkurborgar og hefur skilað góðum árangri. Með möppunni getur húsbyggjandi haldið utan um allar úttektir, umsóknir, sem og reglur og reglugerðir sem nauðsynlegt er að hafa við höndina þegar farið er í byggingar.

---

Ljósmynd/Oddgeir Karlsson.