Málþing FFGÍR í kvöld
FFGÍR, Foreldrafélög og foreldraráð grunnskólanna í Reykjanesbæ, í samstarfi við skólastjórnendur og kennara grunnskólanna í bænum bjóða til Málþings undir yfirskriftinni: Með foreldrum til framfara, í kvöld frá kl. 17.00-20.00 í sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Á dagskrá eru m.a. fyrirlestrar um árangur og líðan barna, heimanám og frásagnir foreldra, nemenda og kennara af árangursríku samstarfi heimilis og skóla. Að loknum fyrirlestrum verður boðið upp á umræðuhópa.
Aðgangur er ókeypis og eru allir, einkum foreldrar, hvattir til að taka þátt.
Boðið verður upp á tónlistaraðtriði og léttar veitingar.