Þriðjudagur 30. maí 2017 kl. 11:54
				  
				Málningu skvett á bifreiðir og bifhjól
				
				
				
	Lögreglunni á Suðurnesjum barst í gærkvöldi tilkynning þess efnis að búið væri að skvetta málningu á tvær bifreiðar og bifhjól í Vogunum. Þegar á vettvang var komið mátti sjá málningu víða á farartækjunum sem öll eru í eigu sama einstaklings. Lögregla rannsakar málið.