Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Máli WOW Air vísað frá
Laugardagur 10. maí 2014 kl. 11:22

Máli WOW Air vísað frá

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá dómi máli WOW Air gegn Isavia ohf., Icelandair hf. og Samkeppniseftirlitnu þess efnis að úrskurður Áfrýjunarnefndar samkeppnismála verði felldur úr gildi. Málinu var að kröfu Isavia og Icelandair vísað frá dómi vegna aðildarskorts WOW Air að umræddum úrskurði.

Samkeppniseftirlitið mælti fyrir um á síðasta ári að Isavia bæri að hlutast til um úthlutun afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála komst að þeirri niðurstöðu að Isavia gæti ekki hlutast til um störf óháðs samræmingarstjóra og felldi fyrirmæli Samkeppnisstofnunar úr gildi. Í framhaldinu stefndi WOW Air ofangreindum aðilum og krafðist þess að úrskurður Áfrýjunarnefndar samkeppnismála verði felldur úr gildi. Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði málinu frá dómi á grundvelli aðildarskorts WOW Air að málinu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024