Málefni Íþróttaakademíu rædd á Alþingi
Líflegar umræður varðandi málefni Íþróttaakademíunnar voru á Alþingi í morgun í kjölfar fyrirspurnar Kolbrúnar Harðardóttur, þingmanns Vinstri Grænna.
Gagnrýndi hún hvernig aðdragandi stofnunarinnar var og sagði ámælisvert að Alþingi hafi ekki fjallað um málið.
„Ég er hlynnt því að íslensk ungmenni um allt land hafi fjölbreytt námstækifæri og er talsmaður eflingar háskólastigsins. En ég gagnrýni hvernig ákvörðunin er tekin og gerð tortryggileg því hún er ekki fyrir opnum tjöldum og um hana hefur ekki farið fram nein fagleg umræða.“
Hún taldi einnig að með stofnun Íþróttaakademíu í Reykjanesbæ væri rekstri Íþróttafræðaseturs Kennaraháskóla Íslands að Laugarvatni ógnað stórlega. Væri fullvíst að KHÍ myndi bregðast við samkeppninni með því að flytja þá starfsemi til Reykjavíkur.Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sagði tilkomu Íþróttaakademíu mikið fagnaðarefni. Ríkið hafi þá ekki komið að málinu með beinum hætti heldur hafi ríkið samið við Háskólann í Reykjavík og þeir síðan samið við Akademíuna. Henni þótti undarlegt að þingmenn skulu mótmæla því að háskólar á höfuðborgarsvæðinu færi út kvíarnar og dreifi sinni starfsemi. „Það er jákvætt að háskólar hér á höfðurborgarsvæðinu sjái kosti sem önnur svæði hafi fram að færa og reyni að styðja þá uppbyggingu sem hið öfluga sveitarfélag Reykjanesbær stendur fyrir með Íþróttaakademíunni.“
Hún bætti því við að samkeppni á sviði menntamála væri alltaf af hinu góða. „Við eigum að vera að fagna í þessum sal, en ekki að vera með úrtöluraddir.“
Aðrir þingmenn stigu í pontu og samglöddust flestir Suðurnesjamönnum með að þar skuli rísa háskólastofnun en ekki voru allir á eitt sáttir með aðdragandann og hvort Akademían ógnaði starfseminni á Laugarvatni.Hjálmar Árnason sagðist ekki skilja þá tortryggni sem fram væri komin um málið. Hann benti á þá staðreynd að hvergi á landinu væri hlutfallsleg þáttaka ungmenna í íþróttum hærri en einmitt á Suðurnesjum og að miðað við íbúafjölda væru líklega hvergi eins mikið af Íslands- og bikarmeisturum í hinum ýmsu íþróttagreinum.
Hjálmar hafði engar áhyggjur af starfseminni á Laugarvatni þar sem starfsemin þar væri kröftug og benti á þá staðreynd að Laugarvatn hafi einungis getað tekið á móti um helmingi umsækjenda og að yfirleitt þegar nýir skólar koma fram fjölgi umsækjendum.
Umræðan var þverpólitísk þar sem sumir þingmenn úr röðum stjórnarandstöðu mæltu gegn orðum Kolbrúnar. Magnús Þór Hafsteinsson, Frjálslynda flokki, spurði m.a. hvort samkeppni í menntamálum væri af hinu vonda. Hann taldi ekki svo vera og dæmi um slíkt töluðu sínu máli. „Ég missi ekki svefn út af þessu máli, hvorki varðandi Íþróttaskólann á Laugarvatni, né varðandi framtíð Íþróttaakademíunnar í Reykjanesbæ.
Jón Gunnarsson, Samfylkingu, fagnaði einnig þeirri staðreynd að nú, i fyrsta skipti, stæði til að bjóða upp á staðbundið háskólanám á Suðurnesjum. „Það á ekki að koma nokkrum Alþingismanni á óvart að það sé verið að stofna Íþróttaakademíu í Reykjanesbæ því þær fréttir hafa verið uppi nokkuð lengi. Sveitarfélög á Suðurnesjum hafa tekið þessari hugmynd fagnandi. Og Suðurnesjamenn eru einróma yfir því að taka vel á móti þessari stofnun og að þetta verði stofnun sem við getum verið stolt af.“
Hann skyldi áhyggjur af málum skólans á Laugarvatni en taldi sannað að nemendum muni fjölga, eftirspurn aukist sem og gæði náms oft og tíðum. „Ég hef hins vegar engar áhyggjur af því og fagna því að þessi hugmynd skuli loks vera orðin að veruleika.“
VF-myndir/Hilmar Bragi