Malbikað í vetrarblíðunni
Það hafa margir getað notað veðurblíðunnar til verka sem vanalega eru ekki gerð að vetri. Síðustu daga hafa malbikunarvélar verið við störf á vegum Isavia á Keflavíkurflugvelli. Þessi mynd var tekin af malbikunarframkvæmdum við Kjóavelli, skammt frá flugstöðinni. Malbikun á fullu í vetrarblíðunni.
Veðurspáin segir okkur að það verði rauðar tölur til 20. desember. Þá tekur við árleg óvissa, hvort það verði hvít eða rauð jól.