Bygg
Bygg

Fréttir

Magur þorskur hefur veiðst víða við landið
Þriðjudagur 29. mars 2005 kl. 13:41

Magur þorskur hefur veiðst víða við landið

Þorskur sem veiðst hefur að undanförnu er víða magur og magi fisksins galtómur. Þórarinn Kr. Ólafsson, fiskverkandi hjá Þrótti í Grindavík, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að þorskurinn hafi verið þannig á sig kominn í allan vetur og það sé óvanalegt. Erfitt sé að geta sér til um ástæður en sjómenn sem hann hafi samskipti við telji margir að lítil loðna á miðum hafi haft áhrif. Þórarinn kaupir fisk alls staðar að af landinu og er með báta í föstum viðskiptum.

Björn Ævarr Steinarsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir í sömu frétt  að engin áberandi merki hafa fundist um fæðuskort hjá þorskstofninum, þrátt fyrir lækkandi meðalþyngd undanfarin ár. Hafrannsóknastofnun hafi margoft bent á að vöxtur þorsks er mjög háður stærð loðnustofnsins, og á undanförnum árum hafi þorskurinn haft mun minna aðgengi að loðnu. Erfitt sé að átta sig á hvort um er að kenna minnkandi loðnustofni eða breyttu göngumynstri loðnu vegna breytts hitafars. Hafrannsóknastofnun hyggst þó rannsaka nánar áhrif veiða á aðgengi þorsks að loðnu.

VF-mynd:Grindavíkurhöfn

Bílakjarninn
Bílakjarninn