MAGNESÍUMFRAMLEIÐSLA Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2005
Á aðalfundi Hitaveitu Suðurnesja, þann 30.ágúst sl., kom fram að tilraunaverksmiðjan í Ástralíu væri komin í gang og að framleiðsla magnesíums væri hafin. Áætlað er að full og stöðug framleiðsla magnesíumsmálms verði komin í gang árið 2003. Ef allt gengur að óskum ætti verksmiðjan á Íslandi að vera 1-2 árum á eftir áætlunum verksmiðjunnar í Ástralíu sem þýðir að framleiðsla hér á landi gæti hafist árið 2005. Magnesíumfélagið stendur að baki framkvæmdum hér á landi og Australian Magnesium Investment (AMI) á nú 40% hlutafjár í félaginu.Magnesíumverksmiðja við SandhöfnVerkfræðistofa Stefáns Ólafsson (VSÓ) var fengin til að gera athugun á mögulegu staðarvali. Í skýrslu VSÓ er staðarvalið staðfest, þ.e. að verksmiðjan eigi að rísa við Sandhöfn í Höfnum, Reykjanesbæ. Þó er mögulegt að hún verði reist nær jarðhitasvæðinu á Reykjanesi.HráefnisvalTilraunaverksmiðjan í Ástralíu notar magnesít til framleiðslu á magnesíummálmi og magnesíumblöndu. Þessar magnesíumvörur eru aðallega notaðar í bílaiðnaði og til að framleiða létta hluti í bíla. VSÓ hefur einnig verið fengin til að bera saman mismunandi hráefnisvalkosti fyrir íslensku verksmiðjuna því auk magnesíts er hægt að nota sjó og skeljasand og jafnvel olivin við framleiðsluna. Kostir magnesíts eru þeir að það er saman efnið og notað hefur verið í Ástralíu og því komin reynsla á það. Skeljasandstöku og sjódælingu fylgja engin umhverfisvandamál en hins vegar yrðu fjárfestingar sennilega minni. Vinnsla á olivin á Grænlandi er nú til athugunar hjá Iðntæknistofnun, Magnesíumfélaginu og grænlenskum aðilum en engin niðurstaðan hefur fengist í því máli ennþá.