Magma: Nefndin skilar niðurstöðum

Starfshópur sem stjórnvöld skipuðu til að meta lögmæti kaupa sænsks dótturfyrirtækis kanadíska fyrirtækisins Magma Energy á HS Orku hefur skilað niðurstöðu sinni.
Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, segir í samtali við visir.is, sem greinir frá þessu, að niðurstaða hópsins verði kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar á morgun. Haft er eftir honum að hugsanlega vilji stjórnvöld fjalla nánar um málið eftir fundinn, annars verði niðurstaðan væntanlega gerð opinber á föstudaginn.
Nefndin átti bæði að meta hvort kaupin stæðust íslensk lög og  samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				