Magma leysi til sín eignarhlut sveitarfélaga
Bæjarráð Garðs hefur samþykkt að Garður taki þátt í kröfugerð ásamt Reykjanesbæ, Grindavíkurbæ og Sveitarfélaginu Vogum um að Magma Energy Sweden leysi til sín eignarhluta sveitarfélaganna í HS orku hf. á grundvelli laga um hlutafélög. Ásmundi Friðrikssyni æjarstjóra hefur verið falið að fylgja málinu eftir.