Mánudagur 29. maí 2000 kl. 13:50
Mældur á 152 km hraða
Ungur karlmaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða eftir að ökuhraði hans var mældur 152 km/klst á kafla þar sem hámarkshraði er 70 km/klst. Atburðururinn átti sér stað á mótum Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar skömmu eftir miðnætti á aðfaranótt mánudags.