Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mældist á 141 km hraða á Reykjanesbraut
Föstudagur 22. september 2017 kl. 09:36

Mældist á 141 km hraða á Reykjanesbraut

-Fjórtán aðrir kærðir fyrir of hraðan akstur

Tæplega fertugur ökumaður mældist á 141 km hraða á Reykjanesbraut í gær en viðkomandi hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Var þetta í annað sinn sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af ökumanninum undir stýri.

Auk hans hefur lögregla kært 14 ökumenn fyrir of hraðan akstur á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 164 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.  Þess ökumanns bíður 130.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í  einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Loks voru fjórir ökumenn handteknir vegna gruns um fíkniefnaakstur.