Maður úr Keflavík sýknaður af tveimur nauðgunum
Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjaness í gær sýknaður af tveimur nauðgunarákærum, en maðurinn var ákærður fyrir að hafa nauðgað 45 ára konu á heimili sínu í Keflavík í september í fyrra og fyrir að nauðga tæplega fimmtugri konu inni á salerni veitingastaðar í Reykjavík í febrúar síðastliðnum. Maðurinn viðurkenndi að hafa haft samfarir við konuna í Keflavík, en með vilja hennar. Hann neitaði öllum kynferðismökum við hina. Karlmaðurinn var að mati héraðsdóms staðfastur og trúverðugur í framburði sínum, en það þótti ekki eiga við um frásagnir kvennanna. Hann var því sýknaður.