Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Maður lést þegar sportbátur sökk
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti manninn af vettvangi. VF/Hilmar Bragi
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
sunnudaginn 23. júlí 2023 kl. 09:59

Maður lést þegar sportbátur sökk

Annar mannanna sem lentu í sjónum fyrir utan Njaðrvíkurhöfn í gær, karlmaður á sjötugsaldri, er látinn eftir að hafa verið fluttur meðvitundarlaus á slysadeild Landspítalans.

Í fréttatilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum segir að hann hafi verið fluttur meðvitundarlaus af vettvangi með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir endurlífgunartilraunir.  Frekari endurlífgunaraðgerðir báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn kl. 22:30 í gærkvöldi á Landspítalanum á Hringbraut.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur verið upplýst um slysið, en samkvæmt fyrstu upplýsingum lögreglu voru þeir tveir um borð á fimm metra sportbáti sem síðar sökk. Tildrög þess liggja ekki fyrir og er rannsókn málsins á frumstigi hjá lögreglu.

Lögregla veitir ekki frekari upplýsingar að svo komnu máli.