Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Maður lést í átökum við lögreglumenn í Keflavík
Föstudagur 10. september 2004 kl. 08:34

Maður lést í átökum við lögreglumenn í Keflavík

Rúmlega þrítugur maður lést eftir átök við lögreglumenn frá lögreglunni í Keflavík í gærdag. Tilkynning barst til lögreglunnar klukkan 17:04 þar sem tilkynnt var um mann sem var illa á sig kominn á gangi í Keflavík. Í tilkynningu frá lögreglunni í Keflavík segir að maðurinn hafi virst vera í annarlegu ástandi og verið færður til lögreglustöðvar.  Lögreglan hringdi á heimili mannsins og svaraði karlmaður í símann, en fram kom í samtalinu að hann væri sonur mannsins sem lögreglan hafði fært til lögreglustöðvar. Eftir samtalið þótti lögreglu ástæða til að kanna ástand sonarins og voru tveir lögreglumenn sendir á staðinn.  Á vettvangi kom sonurinn á móti þeim út á lóðina fyrir utan húsið. Hann var æstur og árásargjarn og hafði í hótunum við lögreglumenn og mjög erfitt var að skilja hvað hann var að segja. Veittist hann að lögreglumönnunum og upphófust mikil átök milli hans og lögreglumannanna.  Þegar lögreglan hafði náð tökum á honum og sett hann í handjárn varð hann alvarlega veikur og lést skömmu síðar. Karl Hermannsson yfirlögregluþjónn lögreglunnar í Keflavík vildi ekkert tjá sig um málið í samtali við Víkurfréttir.
Málið hefur verið sent Ríkissaksóknara til ákvörðunar um hvaða lögregluembætti skuli  fara með rannsóknina.

Myndin: Frá vettvangi seinnipartinn í gær. VF-ljósmynd/Hilmar Bragi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024