Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Má eiga von á jarðskjálftahviðum næstu daga og vikur
Sunnudagur 7. mars 2021 kl. 13:41

Má eiga von á jarðskjálftahviðum næstu daga og vikur

Líkt og kom fram í tilkynningu frá Vísindaráði Almannavarna á föstudag þá var það samdóma álit vísindamanna að við erum nú í tímabili þar sem kvika flæðir inn í jarðlög undir Fagradalsfjalli. Við það myndast spenna í norður-suður sprungum austan og vestan við umbrotasvæðið. Þegar næg spenna hefur myndast, þá hrökkva sprungurnar og við það koma skjálftahrinur. Eftir þær kemur slökun og tímabil minni skjálfta þar til spennan verður aftur of há og svipuð hrina kemur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra.

Gera má ráð fyrir því að ef gangurinn heldur áfram að myndast næstu daga og vikur þá megi eiga von á slíkum áhlaupum og jarðskjálftahviðum nokkrum sinnum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024