Má bjóða þér að sýna í Duus Safnahúsum?
Duus Safnahús og Listasafn Reykjanesbæjar vilja bjóða til samstarfs í sumar við fólk sem ástundar myndlist. Hugmyndin er að bjóða Bíósal undir tvær myndlistarsýningar annars vegar frá 12. júní til 11. júlí og hins vegar frá 17. júlí til 22. ágúst.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sýningarpláss. Með umsókn þarf að fylgja greinargóð lýsing á þeirri sýningu sem fyrirhuguð er og ljósmynd með sýnishorni af þeim verkum sem til stendur að sýna. Margs konar listform kemur til greina svo sem málverk, grafík, teikningar, ljósmyndir, skúlptúrar o.fl. Ekki er þó gert ráð fyrir rafrænni miðlun að þessu sinni. Notast verður við sýningakerfi Bíósalar sem eru brautir með nælonþráðum. Ekki er heimilt að negla í veggi. Val á sýnendum er í höndum Listasafns Reykjanesbæjar.
Sýnendur bera sjálfir ábyrgð á sýningunni og sjá um uppsetningu með aðstoð frá Listasafni Reykjanesbæjar. Sýnendur fylgja þeim reglum sem gilda um starfsemi í Duus Safnahúsum. Listasafnið áskilur sér rétt til að velja úr verkum sýnenda í samstarfi við þá.
Allir sem stunda myndlist af einhverju tagi geta sótt um en þeir sem ekki hafa sýnt í húsunum áður hafa forgang. Hópar geta einnig tekið sig saman og sótt um í einu nafni. Þá er yngra fólk einnig sérstaklega hvatt til að sækja um.
Umsóknir skulu sendar í tölvupósti á netfangið [email protected] í síðasta lagi 1. júní. Í efnislínu (subject) skal skrifa: Sumarsýning í Bíósal.
Með umsókn skal fylgja: Greinargóð lýsing á fyrirhugaðri sýningu, svo sem hvernig verk, fjöldi, stærð, efnisinntak o.s.frv. Ljósmynd/ljósmyndir með sýnishorni af verkum. Ferilskrá umsækjanda.