Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Lýst eftir vitnum að innbroti
Föstudagur 3. júní 2005 kl. 09:29

Lýst eftir vitnum að innbroti

Tilkynnt var um innbrot og þjófnað í Húsakynum Samherja á Ægisgötu í Grindavík í gær. Stolið var tölvubúnaði og fleiru, en ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki. Ef einhverjir geta veitt upplýsingar vinsamlega hafið samband við lögregluna í Keflavík.

Þá hafði Lögregla afskipti af umferðaróhappi á Hafnargötu í Reykjanesbæ í gær. Aðvífandi bifreið ók á opna hurð kyrrstæðst bíls en ekki hlutust miklar skemmdir né meiðsli af.

Auk þess hafði lögregla afskipti af tveimur ökumönnum vegna ölvunaraksturs í gærkvöldi, einum í Grindavík og einum í Vogum, og einum réttindalausum ökumanni skellinöðru í Vogum.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024