Föstudagur 22. júní 2007 kl. 09:33
Lýst eftir vitnum

Bílhurð var skellt utan í bláa Subaru fólksbifreið þar sem henni var lagt við Sundmiðstöðina á Sunnubraut í Keflavík í gærkvöldi. Ef einhver hefur orðið vitni af því er hann beðinn um að koma upplýsingum á lögreglustöðina í Keflavík. Bláa Subaru bifreiðin var í bifreiðastæði á milli kl. 20:00 og 21:00.