Lýst eftir strokufanga
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Sindra Þór Stefánssyni en hann strauk frá fangelsinu að Sogni nú í nótt. Sindri hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 2. febrúar 2018 vegna rannsóknar lögreglunnar á umfangsmiklum þjófnaði á tölvubúnaði. Sindri er íþróttamannslega vaxinn með skolleitt hár, skegghýung og 192 cm á hæð. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum strauk Sindri frá Sogni kl. 01:00.
Allir þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Sindra frá því kl. 01:00 í nótt er beðnir um að koma þeim upplýsingum á framfæri við Lögregluna.