Lýst eftir Kristbjörgu Lind Bragadóttur
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir 16 ára stúlku, Kristbjörgu Lind Bragadóttur. Kristbjörg er um 153 cm á hæð og um 52 kg að þyngd. Hún er með litað ljóst sítt hár, rakað á hægri hlið.
Hún var klædd í svartar buxur, svarta Adidas peysu með hvítum doppum, svarta 66° N úlpu með loðkraga og var í hvítum Nike strigaskóm. Talið er að Kristbjörg haldi til á höfuðborgarsvæðinu.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir stúlkunnar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.