Lýst eftir Erlu Díönu Jóhannsdóttur
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Erlu Díönu Jóhannsdóttur. Erla er fædd 3. ágúst 1997. Hún er 14 ára, grannvaxin, um 160 cm á hæð. Erla er dökkhærð og með rauðar gervi-hárstrípur. Erla hefur ekki komið heim til sín frá laugardeginum 14.apríl sl.
Grunur er um að Erla sé stödd á höfuðborgarsvæðinu. Ekki er vitað um klæðaburð Erlu.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Erlu hafi samband við Lögregluna á Suðurnesjum í síma 420 1800.