Lýsir yfir fullum stuðningi við Úkraínu
„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar tekur einróma undir yfirlýsingu Evrópusamtaka sveitarfélaga, fordæmir harðlega innrás Rússlands í Úkraínu og lýsir yfir fullum stuðningi við úkraínsku þjóðina.
Reykjanesbær er eitt þeirra sveitarfélaga sem er skráð í samstöðuverkefni Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna sem kallast #withrefugees og hefur verið í fararbroddi varðandi þjónustu við flóttafólk frá árinu 2004.
Sveitarfélagið mun leitast við að styrkja þá þjónustu enn frekar til að mæta þeim aukna fjölda Úkraínumanna sem hingað munu leita vegna þeirra hörmunga sem nú dynja yfir,“ segir í ályktun sem samþykkt var samhljóða.